
Þriðjudaga & fimmtudaga · Meistaravellir
Körfuboltaþjálfun
Brynjars
Langar þig að stunda skemmtilega og krefjandi líkamsrækt? Þá eru körfuboltaæfingar fyrir fullorðna eitthvað fyrir þig!
Æfingar
Mætum stundvíslega og hlýjum upp saman — engin skráning fyrirfram nauðsynleg, bara mæting.
Um okkur

Brynjar Þór Björnsson
Stofnandi & framkvæmdastjóriBrynjar er einn þekktasti körfuboltamaður Íslands síðustu ára — stigahæsti leikmaður í sögu Úrvalsdeildar karla með KR, áttfaldur Íslandsmeistari og landsliðsmaður til margra ára, meðal annars á EuroBasket 2017. Hann á líka Íslandsmetið í þriggja stiga körfum: 16 þrista í einum leik.
Þjálfari

Darri Hilmarsson
ÞjálfariDarri Hilmarsson átti frábæran feril sem körfuboltamaður þar sem hann lék með KR, Þór Þorlákshöfn og Hamar. Darri var mikill liðsmaður og er enn þar sem nú eyðir hann kröftunum með KR-B. Darri leggur mikið upp úr því að það sé tekið vel á því en allir fái smá lærdóm af því að mæta á æfingar.
Myndbönd
Sjáðu æfingarnar og augnablikin í fullri lengd á YouTube.


Körfuboltaþjálfun Brynjars tekst frábærlega að tvinna listina að taka vel á því saman við skemmtilegustu hliðar körfuboltans.
Einar Lövdahl · Rithöfundur